Sultuklúbburinn...

...var stofnaður 4. oktober 2004.

þriðjudagur, janúar 13

Gleðileg jól krúttin mín

Hæ hæ.
Sit hér í tíma í stofu 16 og get ekki annað en hugsað til baka til okkar góðu stunda hérna, þegar ónefndur stæ kennari valt næstum niður af sviðinu þegar hann var að útskýra dæmin, brakið í gólfinu og misgóðar stundir, eðlisfræðiströgglið, púlið og allt stuðið hjá okkur.

Svo langaði mig að biðja ykkur að kommenta hér á eftir um einhverjar góðar og kannski gleymdar stundir fyrir suma sem eru í fersku minni fyrir aðra.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt þetta gamla.
Kv. Turner á skólabekk, hvar annars staðar? :O)

miðvikudagur, október 29

Jólin komin snemma í ár?

Hæ hæ sætu skvísur.

Varð bara að deila ótrúlega flottri mynd með ykkur sem ég rakst á á netinu.

Á hinni má sjá hinn alíslenska kreppujólasvein með sitt nýja skegg. Ho ho ho.
Alveg hreint ótrúlega flott mynd, ja svei mér ef maður er ekki bara kominn í jólaskapið. :O)
Mússí múss allar hreint.

Kær kveðja Turner.

laugardagur, október 11

AFMÆLISKVEÐJA

Hún á afmæl´í dag,
hún á afmæl´í dag,
hún á afmæl´hún Eyrún
hún á afmæl´í dag
....víííhúú



Elsku Eyrún


okkar bestu óskir í tilefni dagsins

Kveðja Sulturnar =O)


(Hér kemur viðbót Turners)
Sælla minninga. :O)

þriðjudagur, september 16

Fyrirlestur sem má ekki missa af!

Hæ sætu.
Að gefnu tilefni og stemningu síðustu ára varð ég að skella hér inn fyrirlestri sem er á fimmtudaginn! Tékkið á þessu görls!

http://stefania.unak.is/stefania/skilabod-ein.asp?idbod=2225

Þarna kemur fram að hann verður líka í beinni útsendingu fyrir ykkur sem eruð fjær!
Spurning um að njóta útsendingarinnar! Grrr.
Kv. Turner.

laugardagur, september 13

Afmæliskveðja mánaðarins =O)

Er fólk ekkert að standa sig í afmæliskveðjunum...ég ætla rétt að vona að fólk sé ekki að gleyma sér því...Stína strákamamma, betur þekkt sem Stína Turner, á afmæli í dag...hún fær að sjálfsögðu afmælis og stuðkveðjur frá klúbbnum =)
HÚRRA, HÚRRA, HÚRRAAAAAA....

miðvikudagur, september 3

Hittingur?

Jæja þá er nýtt haust, skólar byrjaðir og allr komið á fullt hjá öllum. Mig langaði bara til þess að kasta fram þeirri hugmynd hvort að við ættum ekki að stefna á hitting einhvern tíman núna í haust? Bara svona svo við missum nú alveg örugglega ekki sambandið. Mér þótti allavega MJÖG gaman að sjá ykkur allar í sumar og þætti enn meira gaman ef við gætum hisst allar saman :o) Er meira en til í að skreppa norður yfir eina helgi... endilega hugsið málið og komið með tillögur...
Bestu kveðjur úr borg óttans

sunnudagur, ágúst 24


Hún Alda okkar á afmæli í dag...klúbburinn óskar henni til hamingju með daginn en óþarfi er að geta aldurs þar sem að hún er auðvitað síung =O)